Date : Tue Mar 12 03:43:33 2003
From : birgir@birgir.com
To : krossinn@skima.is
Subject : Til umhugsunar
"Hver einasti læknir, sem hefir augun opin, gerir sér ljóst hve
fyrirhafnarsamt það er að öðlast þekkingu um starfsemi mannslíkamans.
Og hver einasti menntaður læknir veit, að engin framför hefir
nokkurntíma orðið á því sviði nema fyrir einbeitingu á athugun,
gagnrýni, vinnu og þolinmæði. En að öll afskipti trúarbragða af
heilbrigðismálum, sem í gegn um aldirnar hafa verið mjög mikil, hafa,
eins og allt annað sem er byggt á fáfræði og blekkingum, reynst
lítilsvirði og ekki komið að gagni við lækningu á nokkrum sjúkdómi.
Og þegar menn sjá í gegn um blekkingarhulu töfrakenndra helgiathafna
og vita hve einskisverðar þær hafa reynst til lækninga, er þá nokkur
furða þótt menn verði tortryggnir á önnur heilög sannindi", sem ekki
eru skilningarvitunum aðgengileg?"
- Níels Dungal.
Bestu kveðjur heim á kalda Frón,
Birgir Baldursson
Gran Canaria
Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com
From: krossinn@skima.is
To: birgir@birgir.com
Subject: Re: Til umhugsunar
Date: Wed, 12 Mar 2003 20:37:04 -0000
X-Mailer: Microsoft Outlook Express 5.50.4522.1200
Fullkomið bull
Date : Wed Mar 12 22:16:55 2003
From : birgir@birgir.com
To : krossinn@skima.is
Subject : Re: Til umhugsunar
Rökstuðning takk :)
Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com
From: krossinn@skima.is
To: birgir@birgir.com
Subject: Re: Til umhugsunar
Date: Wed, 12 Mar 2003 23:33:32 -0000
X-Mailer: Microsoft Outlook Express 5.50.4522.1200
rök vinna ekki á bulli
Date : Wed Mar 13 00:22:34 2003
From : birgir@birgir.com
To : krossinn@skima.is
Subject : Bull dugir ekki gegn rökum
>rök vinna ekki á bulli
Öfugmæli. Rök eru einmitt með þeim ósköpum gerð að vinna á bulli og
hrekja það. Það eina sem ég bið um eru málefnaleg rök gegn orðum
Dungals, sem eru að mínu viti skynsamleg í hvívetna.
Segðu mér t.d. hvað þér finnst óskynsamlegt við þau, ekki bara koma
með tveggja til fimm orða sleggjudóma.
Svar þitt skal ég birta á heimaíðu minni, birgir.com, en hana lesa
margir trúleysingjar. Nú er tækifærið til að kristna okkur alla!
Mundu bara að við sættum okkur ekki við neitt minna en rök.
Bestu kveðjur,
BB
Delivered-To: birgir.com-birgir@birgir.com
From: krossinn@skima.is
To: birgir@birgir.com
Subject: Re: Bull dugir ekki gegn rökum
Date: Thu, 13 Mar 2003 12:00:07 -0000
X-Mailer: Microsoft Outlook Express 5.50.4522.1200
Ekki žarf aš gylla gull
gulliš veršur alltaf bjart
en bulliš veršur alltaf bull
žó bśiš sé aš rķma skart.
Ég gefst upp. Žaš er engin leiš aš nį vitręnu sambandi viš žennan mann.
|