Bloggið
Vort auma líf
23.08.03
Horfði á Don Juan DeMarco af DVD í kvöld. Hún stillti upp fyrir manni á nokkuð magnaðan hátt hve ömurlegua ómerkilegur hversdagur okkar allra er. Eins og Marlon Brando ákvað af sýkjast af sjúklingi sínum óskaði maður sér þess helst, meðan á myndinni stóð, að líf manns væri jafn pörfektlí skáldsagnakennt og þvælan sem vall uppúr Johnny Depp.
Fært inn kl. 00:08 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: almennur heilaspuni -
viðbætur (0)
Sammannkennd
22.08.03
Vinur minn einn sagði mér frá því fyrir 20 árum að einhverju sinni þegar hann kom heim úr skólanum og fékk sér ristað brauð og kókómalt hafi Lionel Hampton verið í útvarpinu, á fullu í einhverjum geðveikum fílíng. Við að hlusta á þetta hafi vinur minn fengið yfir sig sterka samkenndartilfinningu með mannkyninu farið að háskæla.
Fært inn kl. 14:00 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (3)
Lísa Rist
22.08.03

Japanskur listamaður endurgerði árið 1983 andlitsmyndina af Mónu Lísu, alfarið úr ristuðu brauði.
Fært inn kl. 10:40 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (0)
Njála greyið og kynvillt auðvald
21.08.03
Sumir eru svo djarfir að halda því fram að Njáll á Bergþórshvoli hafi verið kona meðan aðrir eru á því að Flugleiðir séu karlkyns. Íslendingar eru síðan ansi samkynhneigðir þegar kemur að dönskum nafnorðum enda tungumálin tvö oft ósammála um hvaða kyn orðin taka.
Íslendingar ættu allir sem einn að taka stoltir þátt í gay-pride þótt ekki væri nema á þessum forsendum.
Hér er svo gamli Vefarinn og neðst í honum er síðan tengill í eldgamla Vefarann.
Fært inn kl. 20:09 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: vefarinn -
viðbætur (0)
Kjöttölvan
21.08.03
Lykillinn að því hvernig heilinn hugsar liggur gegnum málmyndunarfræðina. Chomsky kom okkur á bragðið og Pinker er sýnist mér kominn langleiðina með að leysa gátuna.
Chomsky, Halle og Mohanan tókst á sínum tíma að alhæfa aðeins þrjár reglur upp á heilar 165 enskar sagnir. Með þessu tókst þeim að leiða út með nokkurri nákvæmni hvernig við geymum tungumálið í hugskotinu, en kenningin strandar skv. Pinker helst á því að gera ráð fyrir að börn "viti" undirliggjandi form sagna og beiti ósjálfrátt reglum sem leiða út yfirborðsgerðina. Pinker teflir fram mun meira digital skýringu, þar sem módúlur í heilanum eru annað hvort kveiktar eða slökkkar, rétt eins og tölva vinnur. Pinker segir:
No one doubts that language is computed by networks of neurons in the brain. Rules - even the pristine, logic-like rules of Chomsky and Halle - are intended as high-level descriptions of processes or structures that are implemented in some way in neural circuitry. The difference between connectionism and generative grammar lies in the kind of mental operation that are thought to be implemented in neural networks. In particular, connectionism differs fro generative grammar in the way that associationism differs from symbol manipulation.
Þetta er heillandi pæling og í fullu samræmi við það hve byggingareiningar heimsins og lífsins eru í raun fáar og einfaldar. Hér liggur einfaldlega ljóst fyrir að hugarstarf okkar er mun einfaldara og rökrænna en flestir hafa hingað til viljað fullyrða. Það þarf ekki nema 460 "taugræna" rofa til að við getum lært öll blæbrigði þátíðarmynda sagna sem hafa sterka beygingu. Þessir rofar hlusta eftir myndunarstað hljóða í munnholi og stilla sig í samræmi við hvort hljóðið á sér uppruna framarlega eða aftarlega í munn- eða nefholi.
Einfalt og gott. Eins og restin af heiminum.
Fært inn kl. 19:07 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: tungan -
viðbætur (0)
Tamsti
21.08.03
Í þessu bloggi mínu hér ræði ég það aðeins með hvaða hætti málþróun á sér stað. Svo maður flaggi glænýju dæmi þá eru til börn á Íslandi sem halda að áhaldið sem þau nota til að bursta í sér tennurnar heiti tamsti.
Fært inn kl. 14:19 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: tungan -
viðbætur (0)
Skarplega athugað
21.08.03
Því fleiri sem reknir eru úr vinnu, því meira atvinnuleysi.
- Calvin Coolidge, þá forseti Bandaríkjanna
Fært inn kl. 14:10 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: stjórnmál -
viðbætur (0)
Lýsnar og flærnar bíta mig
21.08.03
Enn að lúsaleita og böggfixa. Verst að eftir að ég færði innsláttarformið úr sérstökum glugga niður í færslurnar hefur læðst einhver villa í skjölin, bæði þetta og archive-ið. Linkarnir undir færslunum virka ekki rétt. Anchorið undir varnalegri slóð fer ekki á réttan stað á varanlegu síðunni og þar virka linkarnir í flokkana ekki rétt.
Ég er nokkuð viss um að eitthvað kóðafikt veldur þessu, eða að scriptin í hausnum eru að fökka þessu upp, t.d. þetta:
function OpenComments (c) {
window.open(c,
'comments',
'width=480,height=480,scrollbars=yes,status=yes');
}
Einhverjar hugmyndir?
Fært inn kl. 01:17 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: nördismi -
viðbætur (4)
Köngulóguð
19.08.03
Þáttur um trúarstef í myndum Ingmars Bergman á Rás 1. Einmitt nú er verið að fjalla um köngulóguð í einni mynda hans.
Hjá okkur í Bless var afgreiðslan fljót. Þar var köngulóguðinn spurður um tilvist Guðs og hvort heimsendir væri í nánd. Óttarr Proppé brá sér í gervi hans og gargaði "definitely not!"
Fært inn kl. 22:38 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (0)
Símless?
19.08.03
Í nótt komst ég hættulega nálægt því að leysa það á snilldarlegan hátt hvernig ég tengi í gömul blogg undir flokkunum. En þarna kom einfaldlega í ljós ágalli á Movable Type (nema ég sé að horfa framhjá einhverju).
Snilldin var þessi: Ég nenni ómögulega að fara að færa allar gömlu færslurnar mínar inn í þetta kerfi, auk þess sem varanlegar slóðir þeirra eyðileggjast við það. Það eina sem mig vantar að gera er að láta nýjar færslu í hverjum flokki bætast ofan við þær gömlu.
Ég ákvað að nota <$MTInclude module$> tag. Tók til prufu alla gömlu linkana úr flokknum "almennur heilaspuni" og stakk þeim inn í nýtt templateskjal með sama nafni. Síðan var einfaldasta mál í heimi að skella inklúdtagginu bara undir entrífærsluna í Categorytempleitinu, nema hvað sökum þess að MT notar eitt og sama skjalið sem template fyrir alla flokkana varð ég að gera þetta svona:
<$MTInclude module="<$MTEntryCategory$>">
Verst að MT viðurkennir bara ekki MT tag sem skilgreiningu innan gæsalappanna, heldur aðeins einhvern fasta. Og ég er strand.
Veit einhver nördinn hvort hægt sé að láta MT fá upp sérstakt template fyrir hvern flokk? Mér sýnist það vera eina leiðin til að sigrast á þessu. Ég trúi ekki öðru en fullkokmið kerfi á borð við þetta geti virkað seamless með handkóðuðu bloggkerfi.
Fært inn kl. 15:52 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: nördismi -
viðbætur (3)
Tepruaukning
19.08.03
"Let me spend my life making love to you day and night..." söng Frank Sinatra einhverntíma í ðe fortís. Löngu seinna þurftu Rolling Stones að breyta hendingunni "Let's spend the night together" í "Let's spend some time together" þegar þeir tróðu upp í Ed Sullivan Show.
Hvað var með þennan Ed Sullivan?
Fært inn kl. 14:04 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (2)
Endastöðin
19.08.03
Ég get vel ímyndað mér að þegar menn hlustuðu á Sinatra og alla hina gullaldarsöngvarana flytja sinfóníuskreytta standardana kringum seinna stríð hafi þeir ef til vill litið svo á ekki yrði lengra komist í dægurlagagerð. Engin leið var að sjá það fyrir að fram kæmu Bítlar og Radiohead og hvað þetta nú allt heitir.
Í dag læðist að manni sá grunur að það sé búið að gera allt sem hægt er í tónlist. Hvílík reginfirra. Okkur vantar bara ný hljóðfæri og nýtt sánd.
Sjáið bara hvað rafgítarinn gerði fyrir poppið!
Fært inn kl. 13:47 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: tónlist -
viðbætur (2)
Eyrnatvist
19.08.03
Tveir ørentvistar skríðandi innan á lokinu á geitungagildrunni. Ólíklegustu pöddur virðast vera sælgætissjúklingar.
Fært inn kl. 12:03 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (0)
Enlarge this!
18.08.03
Með tölvupóstinum berst skeyti um að nú geti allir öðlast stærra typpi. Ætli biskupinn sjái nokkurntíma svona póst?
Fært inn kl. 20:45 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: dýrðin -
viðbætur (0)
Fólk og tungur
18.08.03
Í flestu tilliti er þróun tungumála algerlega hliðstæð þróun tegundanna og um leið jafnvel rök fyrir kenningu Darwins. Stöðugar genaafritanir hjá tegundunum valda stökkbreytingum sem leiða til alls kyns afbrigða, en í tungumálinu er þetta eins og hvísl-leikurinn þar sem krakkar mynda hring og einn hvíslar setningu í eyra þess næsta og svo koll af kolli þar til sá sem byrjaði fær útkomuna.
Eitthvað allt annað en lagt var upp með.
Það eru þessar misheyrnir aldanna og leti við að bera fram orð sem valda málbreytingum. Gott dæmi er ákveðni greinirinn í íslensku: "Hús hið stóra" varð "húsið stóra" og svo bara "stóra húsið". Í ensku var þátíðin í eina tíð yfirleitt laus frá sagnorðinu og menn sögðu eitthvað í líkingu við "he walk did home" og "she pay did her mother".
Svo féllu burt fullt af hljóðum og allt rann saman.
Mállýskur eru eins og kynþættir og kannski hægt að segja að það sé sama tungumálið þegar tveir menn geta skilið hvor annan, rétt eins og að hjá tegundunum teljast einstaklingarnir til þeirrar sömu ef þeir geta eignast saman frjó afkvæmi. En ef málsvæði nær að einangrast frá umhverfi sínu nógu lengi kemur að því að aðrir hætta að skilja. Og það merkilega er að slík afskekkt svæði varðveita betur tunguna gegnum aldirnar en þeir sem hafast við í alþjóðlegum straumi.
Og þetta ber okkur að alveg dásamlegri spurningu: Eru kröfur íslenskra þjóðernissinna um verndun hinnar íslensku genetíkur fyrir erlendum straumum þá sambærilegar hugsjónum þeirra sem vilja varðveita tunguna? Eðlilegast væri að ganga út frá því að þarna sé um það sama að ræða. Og þá verða líka þau rök sterk sem mæla gegn verndun tungunnar, því eins og að fábreytt genetík lítils erfðamengis veldur úrkynjun, þá hlýtur tungumál sem ekki fær að baða sig í erlendum áhrifum að verða fábreyttara tjáningartæki fyrir bragðið.
En það er annar vinkill á þessu: Alþjóðasinnar eins og ég eru yfirleitt málsvarar fjölbreytileika, sbr. orð mín:
Hvað er að því að geta séð fjölbreytilegt litróf mannkynsins út um gluggann sinn? Verður samfélagið ekki því skemmtilegra og fegurra sem fleiri afbrigði af tegundinni homo sapiens ber fyrir augu okkar? Þykir ykkur ekkert gaman að virða fyrir ykkur á sömu mínútunni ljóshærðan gamlan kall, gulbrúna dökkeyga yngismær og svartan transvestít í eldrauðum kjól? Hvað getur hugsanlega verið neikvætt við þessa mynd?
En veldur ekki öflug genablöndun einmitt meiri fábreytileika þegar upp er staðið, eitt gulgrátt mannkyn í stað fjölbreyttari stofna? Getur verið að nasistarnir séu mun fremur en maður sjálfur að hlúa að fjölbreytileik mannkyns? Það er í það minnsta svo að þegar þjóðtunga er orðin sjaldgæf, eins og gelíska og íslenska, fær hún aukið vægi og verður að mennigarverðmætum sem ber að vernda með öllum ráðum. Af hverju gildir það þá ekki um genetíkina?
Kannski liggur svarið í hugtakinu hæfni. Í slíku ljósi má fullyrða að verndun tungunnar sé mistök. Við lifum í heimi þróunar þar sem gildir að sigra aðstæður. Fjölbreytt genamengi að baki einstaklings eykur líkurnar til þess að afkomendurnir komist af. Og tunga sem ekki lagar sig að nýjum aðstæðum dagar einfaldlega uppi. Það má vernda hana inni á söfnum líkt og múmíur, en að ætla heilu þjóðunum að notast við úrelt tjáningarkerfi er afar óskynsamlegt svo ekki sé meira sagt.
Því virðist mér nauðsynlegt að við leyfum tungunni að þróast svo hún haldi áfram að vera fyrsta flokks tæki í heimi sem verður æ flóknari. Sama gildir um okkar fábreyttu genetík.
Fært inn kl. 15:08 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: nasismi -
viðbætur (1)
Léttara hjal
18.08.03
Sjáið þið einhvern mun?
Ekki það nei? Gott mál. Ég varði allri helginni í að finna heildarlausn á bloggviðmóti mínu. Sá að það gekk ekki lengur að handkóða hverja einustu skipun fyrir hvert einasta blogg, uppfæra flokkasíður jafnóðum og skella fyrirsögn á blogg.html handa rassmolum að kjamsa á... Þessi fyrirhöfn öll var farin að valda bloggfælni.
Laugardagurinn fór í að finna út að kerfið á blogger.com var ekki málið. Ég geri einfaldlega of stífar kröfur um að þetta lúkk hér fái að halda sér og Bloggerinn réði ekkert við það.
Gærdagurinn fór í Movable Type.
Hvílíkt dásemdartól sem það er. Skil ekkert í hvað ég var hræddur við þetta kerfi, hélt að það væri svo flókið að setja það upp á server og erfitt að skilja templeitin. En nei, þetta er allt frekar augljóst. Og ég stóð varla upp allan sunnudaginn og raknaði úr leiðslurotinu löngu eftir miðnætti, búinn að laga sniðmátin að vefumhverinu mínu að stóru leyti.
Og nóttin varð svefnlítil. Staðreyndin er raunar sú að ég bloggaði mest af þessu hér klukkan fimm í nótt eftir að hafa bara legið og planað og skiplagt og pælt. Frjósemi hugans minnir á gamla daga.
En þetta er semsagt komið í gagnið og frábært að geta hoppað inn á formsíðu og fyllt út í gluggum þegar bloggþörfin kemur yfir. Það eru þó allmargir lausir endar, t.d. hvað snertir gamlar færslur, flokka og annað. Geri ráði fyrir að kippa því smám saman í liðinn.
Og þetta mun tákna breytingar, því þungu "vönduðu" færslurnar láta aðeins undan síga fyrir styttri og alvörulausari smáskömmtum. Vefarinn kemur t.d. aftur sterkur inn, en nú sem einn flokkur á þessum bloggvöllum. Annar nýr flokkur er dýrðin, örstuttar observasjónir á nánasta umhverfi í stíl við vasabækur Péturs Gunnarssonar.
Njótið. Ég ætla að halda áfram að breinstorma.
Fært inn kl. 12:57 GMT - varanleg slóð -
Flokkur: almennur heilaspuni -
viðbætur (0)
|