Bloggið

Stytturnar í Köben
28.08.03

Ein við Østerbrogade sem er eins og krjúpandi kúkur. Þarf að muna að taka mynd af henni. Svo eru það allar þessar sensjúölu. Nakið þetta og alsbert hitt. Þær eru sumar upphafnar á svipinn og eiga jafnvel að túlka eitthvað kristilegt, en eru út úr öllu korti.

Nei, hér ekki um að ræða raunhegðun nokkurs einasta heilvita manns. Við yrðum öll sett á hæli eða í steininn ef við færum að hafa í frammi svona tilburði.

Fært inn kl. 18:52 GMT - varanleg slóð - Flokkur: dýrðin - viðbætur (0)




Hanagarg
28.08.03

Einhver af nágrönnunum á hana sem galar klukkan fjögur á nóttunni. Einkennileg ráðstöfun í ríkmannlegu úthverfi á 21. öldinni. Eru Baunar svona miklir sveitamenn? Reyndar dáldið flott þegar hanagalið blandast við mávagargið. Hvað eru þeir annars að gera hérna lengst uppi í landi?

Fært inn kl. 18:44 GMT - varanleg slóð - Flokkur: dýrðin - viðbætur (4)




Prestarusl
28.08.03

Ég held að prestadjobbið hljóti að vera eins sú mesta óþurftaratvinnugrein sem fyrirfinnist.

Fyrir það fyrsta er þetta fólk menntað í yfirnáttúru og þrælasiðfræði þess sem spyr ekki um réttmæti hegðunar sinnar heldur leitar svara í bók. Síðan hafa prestarnir það sem aðalstarfa að þröngva þess konar hugsunarhætti yfir á alla alþýðu manna og draga hana þannig niður á lægra siðferðisplan en efni standa til.

"Já, en þeir inna nú líka af hendi alls kyns félagsleg störf, tala á milli hjóna og aðstoða sjúka, tilkynna andlát og þar fram eftir götum," segið þið nú.

Sjáið þið þetta sem eitthvað jákvætt? Ég sé þetta sem vandamál. Af hverju er ekki fagmenntuðu fólki gert að starfa við þetta sem þið teljið upp og kostað af ríkinu? Af hverju er verið að ráða yfirnáttúrufræðinga í þetta?

Ég man þegar snjóflóðin urðu á Súðavík og Flateyri. Útvarpið var ólatt við að auglýsa að hjá Rauða krossinum mætti fá áfallahjálp hjá sérmenntuðu fagfólki og prestum. Hvað voru þeir að gera þarna, vomandi yfir harmi slegnu fólki eins og einvherjir sorgarpervertar? Sögðu þeir fólkinu að þetta væri allt í þessu fína af því þetta væri vilji Guðs, eða að allt dána fólkið væri nú komið til himna?

Ég bara spyr.

Í Kaupmannahöfn starfar prestur við að aðstoða fólk sem leita þarf lækninga hjá dönskum sjúkrastofnunum. Hann fór reyndar í frí nýlega og enginn var til að sinna starfinu á meðan.

Hvað ef einhver hefði nú dáið? Áttu aðstandendur bara að standa og grenja þarna á göngunum? Og af hverju í fjáranum er prestur með þetta starf með höndum en ekki einhver sem til þess er fallinn að sinna því?

Fært inn kl. 14:25 GMT - varanleg slóð - Flokkur: trúmál - viðbætur (0)




orri.org
27.08.03

Jæja, Orri er byrjaður að blogga.

Fært inn kl. 11:24 GMT - varanleg slóð - Flokkur: tónlist - viðbætur (0)




Geðræna
26.08.03

Hamast við að öpplóda mp3 fælum á orri.org. Djöfull sem við Orri höfum gert góð stykki saman gegnum árin. Aldan, Ræna, Sumarlag og hvað þetta allt heitir.

Fært inn kl. 21:49 GMT - varanleg slóð - Flokkur: tónlist - viðbætur (0)




Röska lögga
26.08.03

Maður hringir í lögreglu, tilkynnir andlát ungrar konu og er handtekinn. Hvað á það að fyrirstilla? Væri ekki tilvalið komast að því fyrst hvort hún hafi látist af eðlilegum orsökum áður en rokið til og menn handteknir í allar áttir?

Fært inn kl. 12:32 GMT - varanleg slóð - Flokkur: almennur heilaspuni - viðbætur (2)




Gangsteragræja
26.08.03

Sá og skoðaði nokkra Chrysler PT Cruiser í einhverju bílaumboði í Kolding. Féll gersamlga fyrir þessu dásamlega lúkki.

Djöfull eru bílar orðnir flottir í seinni tíð.

Fært inn kl. 00:54 GMT - varanleg slóð - Flokkur: dýrðin - viðbætur (2)




Sjálfskipaðar þrælabúðir
24.08.03

Úff, maður hefur varla litið upp alla helgina, heldur unnið sleitulaust við að koma tveimur vefjum á koppinn.

Þetta eru Vantrú.net og orri.org, væntanlegur blogg- og upplýsingavefur vinar míns Orra Harðarsonar tónlistarmanns.

Allt unnið í Múvabúl. Og báðir fara þessir vefir í loftið innan tíðar. Læt ykkur vita.

Fært inn kl. 21:07 GMT - varanleg slóð - Flokkur: almennur heilaspuni - viðbætur (0)




14.09.03 - 20.09.03
07.09.03 - 13.09.03
31.08.03 - 06.09.03
24.08.03 - 30.08.03
17.08.03 - 23.08.03
01.08.03 - 15.08.03
16.07.03 - 31.07.03
01.07.03 - 15.07.03
16.06.03 - 30.06.03
01.05.03 - 15.05.03
16.04.03 - 30.04.03
01.04.03 - 15.04.03
16.03.03 - 31.03.03
01.03.03 - 15.03.03
16.02.03 - 28.02.03
01.02.03 - 15.02.03
16.01.03 - 31.01.03
01.01.03 - 15.01.03
2002

birgir@birgir.com
Movable Type 2.64 knýr þetta blogg